Starfaprófílar

Afurð hæfnigreiningar kallast starfaprófíll og hann inniheldur:

  • Stutta skilgreiningu á starfinu.
  • Lista yfir helstu viðfangsefni starfsins.
  • Önnur mikilvæg atriði.
  • Lista yfir þá hæfniþætti sem eru mikilvægastir til að inna starfið af hendi á árangursríkan hátt, ásamt lýsingu á hæfninni á viðeigandi þrepi.

Til að undirbúa starfsfólk fyrir viðkomandi starf má byggja nám á hæfnikröfum sem lýst er í starfaprófíl sem einnig nýtast sem grunnur að viðmiðum við raunfærnimat.

Þrep hæfniþáttanna gefur til kynna hvar nám myndi flokkast í hæfniramma um íslenska menntun.

FA safnar starfaprófílum í eigin hæfnigrunn en í hann fara aðeins niðurstöður sem hafa fengist með aðferðum og verkfærum FA.

Nýr starfaprófíll er yfirfarinn að fimm árum liðnum og í framhaldinu á þriggja ára fresti.

Sía
Tögg
Aðstoð við léttan iðnað
Tilgangur starfs felst einkum í að létta undir og vinna með samstarfsfólki við ýmis verk í fjölbreyttu vinnuumhverfi og vinna samkvæmt verklagsreglum.
Aðstoð við léttan iðnað

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 1 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2025

Starfaprófíll á pdf

Aðstoðarmaður í málmiðnaði
Aðstoðarmaður í málmiðnaði starfar með sínum yfirmönnum við að ná settum markmiðum í daglegum rekstri fyrirtækis.
Aðstoðarmaður í málmiðnaði

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll pdf

Áfengis og vímuefnaráðgjafi
Áfengis- og vímuefnaráðgjafi aðstoðar fólk við að meta stöðu sína gagnvart notkun og áhrifum vímuefna á líf þess.
Áfengis og vímuefnaráðgjafi

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2019.

Starfaprófíll á pdf

Bókari
Tilgangur starfsins er að vinna í tengslum við fjármál og rekstur, skrá útgjöld og tekjur og halda upplýsingum til haga. Unnið er með ýmis gögn sem þurfa að vera rekjanleg og skipulega upp sett og er nær eingöngu unnið við tölvur og bókhaldsforrit.
Bókari

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun. Útgáfa 2024.

Starfaprófíll á pdf

Deildastjóri í móttöku
Tilgangur starfs deildarstjóra í móttöku er að fara með yfirstjórn og ábyrgð á starfsemi og rekstri gestamóttöku gististaða.
Deildastjóri í móttöku

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 4 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018

Starfaprófíll á pdf

Dyravörður
Dyravörður tekur á móti gestum og hefur það hlutverk að fylgjast með þeim sem staðinn sækja og tryggja öryggi þeirra, húsnæðisins og starfsmanna.
Dyravörður

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll pdf

Eldvarnareftirlitsmaður
Meginviðfangsefni starfs eftirlitsmanns eldvarna eru almennt og sérhæft eldvarnareftirlit með atvinnuhúsnæði, jafnt fyrirtækjum sem stofnunum.
Eldvarnareftirlitsmaður

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 4 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2022.

Starfaprófíll pdf

Ferðaþjónn
Ferðaþjónn starfar á hótelum og gistiheimilum og sinnir þar mismunandi verkefnum og þarf ávallt að hafa ólíkar þarfir gesta í huga.
Ferðaþjónn

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll á pdf

Flokkstjóri í fiskvinnslu
Megin viðfangsefni flokksstjóra er að skipuleggja störf og halda utan um hóp starfsmanna á tilteknu vinnslusvæði.
Flokkstjóri í fiskvinnslu

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 1 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll pdf

Gæðaeftirlitsmaður í fiskvinnslu
Gæðaeftirlitsmaður í fiskvinnslu hefur eftirlit með gæðum hráefnis, hreinlæti starfsfólks, þrifum og ástandi búnaðar og húsnæðis í öllu vinnsluferlinu.
Gæðaeftirlitsmaður í fiskvinnslu

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll pdf

Gjaldkeri – fjárreiður
Tilgangur starfsins felst í meðhöndlun fjármuna, að greiða reikninga, umsjón með greiðsluferlum, hvort sem um er að ræða við innlenda eða erlenda viðskiptamenn eða lánardrottna.
Gjaldkeri - fjárreiður

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2025

Starfaprófíll á pdf

Heilbrigðisgagnafræðingur
Heilbrigðisgagnafræðingur hefur sérþekkingu á meðhöndlun heilbrigðisgagna, gæðastöðlum, skilvirkni skráningar og lagaumhverfi heilbrigðisþjónustunnar.
Heilbrigðisgagnafræðingur

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 5 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll á pdf

Hópferðabílstjóri í ferðaþjónustu
Starf hópferðabílstjóra í ferðaþjónustu felst í akstri og þjónustu við farþega.
Hópferðabílstjóri í ferðaþjónustu

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 1 miða við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll pdf

Kjötskurður
Tilgangur og markmið starfs við kjötskurð er að þekkja vöðvabyggingu þeirra dýraafurða sem unnið er með til að vera fær um að hluta niður og úrbeina lamb (dilk), svín, hross, naut, alifugla.
Kjötskurður

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Starfaprófíll á pdf

Kvikmyndastjórn (Lifandi myndir)
Tilgangur starfsins er að vinna og setja fram útfærslu hugmynda að handriti fyrir kvikar myndir, segja sögu í myndformi, sjá um framleiðslu kvikmyndaefnis fyrir verkkaupa eða á eigin vegum.
Kvikmyndastjórn (Lifandi myndir)

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2023

Starfaprófíll á pdf

Landvörður
Tilgangur starfsins er að vernda náttúru, umhverfi og menningarminjar og stuðla að jákvæðri upplifun og viðhorfi gesta til verðmæta landsins og verndunar þeirra.
Landvörður

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 og 4  miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll á pdf

Leiðbeinandi í fullorðinsfræðslu
Tilgangur starfsins er að stuðla að námi fullorðinna þannig að þeir auki hæfni sína á tilteknu sviði.
Leiðbeinandi í fullorðinsfræðslu

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 og 4 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2019.

Starfaprófíll á pdf

Leiðsögumaður
Leiðsögumaður leiðsegir og stýrir ferðamönnum, bæði einstaklingum og hópum, í lengri eða skemmri ferðum.
Leiðsögumaður

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll á pdf

Liðveitandi
Tilgangur starfs liðveitenda er að veita einstaklingum með fötlun, sem rétt eiga á, félagslega aðstoð og auka þannig lífsgæði þeirra.
Liðveitandi

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 og 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2020.

Starfaprófíll pdf

Ljóstækni
Tilgangur starfsins er að setja upp og taka niður ljósabúnað á öruggan hátt til að veita þá lýsingu sem krafist er við hvers konar viðburði. Grunnkunnátta á rafstraumi og rík öryggisvitund er mikilvæg.
Ljóstækni

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2024

Starfaprófíll á pdf

Millistjórnandi í ferðaþjónustu
Tilgangur starfsins er að leiða og skipuleggja dagleg verkefni deildar í samræmi við gildi, stefnu og verklagsreglur fyrirtækisins.
Millistjórnandi í ferðaþjónustu

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 4 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2019.

Starfaprófíll pdf

Millistjórnandi í verslun
Millistjórnandi í verslun stýrir daglegum rekstri og verkefnum í verslun í samræmi við skipulag og áætlanir og tekur rekstrarlegar ákvarðanir í samræmi við valdsvið sitt.
Millistjórnandi í verslun

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2016.

Starfaprófíll pdf.

Móttaka á gististöðum
Tilgangur starfs í móttöku á gististöðum er að taka á móti gestum og veita þeim þjónustu í samræmi við stefnu og gæðaviðmið gististaðarins.
Móttaka á gististöðum

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2019.

Starfaprófíll pdf.

Öryggisvörður
Starf öryggisvarða felst í því að vakta eignir og fólk fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir.
Öryggisvörður

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2019.

Starfaprófíll pdf.

Ráðstefnutækni
Tilgangurinn er umsjón með tæknimálum á stórum sem smáum viðburðum s.s. ráðstefnum, kynningum og blönduðum (hybrid) fundum.
Ráðstefnutækni

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2023

Starfaprófíll á pdf

Rannsóknartæknir
Rannsóknartækir vinnur að jafnaði við sýnameðhöndlun (s.s. móttöku, skráningu, frágang og úrvinnslu).
Rannsóknartæknir

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 1 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2014.

Starfaprófíll pdf.

Samfélagstúlkur
Samfélagstúlkur miðlar munnlega merkingu á milli aðila sem ekki tala sama tungumál, án þess að taka afstöðu til viðfangsefnisins.
Samfélagstúlkur

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll pdf.

Sérþjálfaður byggingaverkamaður
Sérþjálfaður byggingaverkamaður starfar með sínum yfirmönnum við að ná settum markmiðum í daglegum rekstri fyrirtækis.
Sérþjálfaður byggingaverkamaður

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll pdf.

Sérþjálfaður starfsmaður í matvælaiðnaði
Tilgangur starfs sérþjálfaðs starfsmanns í matvælaiðnaði er að vinna að því að viðskiptavinir fái matvæli/vöru sem uppfyllir gæðastaðla.
Sérþjálfaður starfsmaður í matvælaiðnaði

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2019.

Starfaprófíll pdf.

Sjúkraflutningar
Tilgangur starfs við sjúkraflutninga er að vernda líf og heilsu fólks, sinna þeirri mikilvægu þjónustu sem útköll eru. Vera fyrsta viðbragð við bráðum veikindum og slysum.
Sjúkraflutningar

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2022

Starfaprófíll pdf.

Skógarmaður
Skógarmaður sinnir ýmsum verkefnum í skógrækt og landgræðslu sem eru breytileg eftir árstíðum.
Skógarmaður

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2013.

Starfaprófíll pdf.

Skólaliði
Tilgangur starfs skólaliða er að aðstoða, veita stuðning og vera til staðar fyrir nemendur í leik og starfi. Stuðla að auknum félagslegum tengslum og styðja við jákvætt viðmót nemenda.
Skólaliði

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Starfaprófíll á pdf

Skólaritari
Tilgangur starfsins er að þjónusta og vera í samskiptum við nemendur, foreldra, starfsfólk og aðra utanaðkomandi aðila.
Skólaritari

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2024

Starfaprófíll á pdf

Slökkviliðsmaður
Tilgangur starfs slökkviliðsmanns er að vernda líf og heilsu manna, eignir og umhverfi með því að tryggja öryggi með fullnægjandi viðbúnaði við eldsvoðum, mengunaróhöppum, björgun fastklemmdra og öðrum björgunarstörfum.
Slökkviliðsmaður

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2021.

Starfaprófíll á pdf

Starf á deild í leikskóla
Starfsmaður á deild í leikskóla tekur þátt í uppeldi, menntun og umönnun leikskólabarna innan deildar og utan samkvæmt aðalnámskrá leikskóla og lögum og reglugerð um leikskóla.
Starf á deild í leikskóla

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll pdf.

Starf í frístund
Tilgangur starfsins er að leiðbeina og vera til staðar fyrir börn. Styðja við færni barna, hlusta á þau, veita öryggi og stuðning. Vera góð fyrirmynd, efla sjálfstæði, jákvæða sjálfsmynd og bera virðingu fyrir öllum.
Starf í frístund

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 1 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2024

Starfaprófíll á pdf

Starf í íþróttahúsi
Starfsmaður í íþróttahúsi tekur á móti og þjónustar fjölbreyttan hóp viðskiptavina.
Starf í íþróttahúsi

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll pdf.

Starf í leikskóla
Tilgangur starfsins er að þjónusta og vera til til staðar fyrir börn og starfsfólk á leikskóla.
Starf í leikskóla

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 1 miðað við hæfniramma um íslenska menntun. Útgáfa 2024.

Starfaprófíll á pdf

Starf í matvælaiðnaði
Almennur starfsmaður í matvælaiðnaði starfar að jafnaði við framleiðslu og/eða pökkun á matvælum.
Starf í matvælaiðnaði

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 1 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2, 2019.

Starfaprófíll pdf.

Starf í upplýsingatækni
Starfsmaður við upplýsingatækni starfar á fjölbreyttum vettvangi við aðstoð vegna upplýsingatækni og umsýslu/aðlögun gagna.
Starf í upplýsingatækni

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2016.

Starfaprófíll pdf

Starf í verslun – hæfniþrep 1
Tilgangur starfs í verslun er bein og / eða óbein þjónusta við viðskiptavini og að sinna skilgreindum verkefnum starfsins.
Starf í verslun - hæfniþrep 1

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 1 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2024

Starfaprófíll á pdf

Starf í verslun – hæfniþrep 2
Tilgangur starfs er að sinna almennum skilgreindum störfum í verslun undir stjórn deildar-, rekstrarstjóra eða öðrum sem hefur stöðu yfirmanns í viðkomandi deild eða verslun.
Starf í verslun - hæfniþrep 2

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Dæmi um starfsheiti fyrir starf í verslun þrep 2 er s.s. almennt starfsfólk í verslun, afgreiðslufólk, sölufulltrúi eða álíka.

2. útgáfa 2025

Starfaprófíll á pdf

Starf í verslun – hæfniþrep 4
Tilgangur starfsins er að bera ábyrgð á og sjá um daglegan rekstur verslunar ásamt umsjón með þjónustu við viðskiptavini, setja viðmið um þjónustustig svo að þjónusta sé ávallt í forgangi.
Starf í verslun - hæfniþrep 4

Starfið er á hæfniþrepi 4 miðað við hæfniramma um íslenska menntun. Hæfniþættir í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 4.

Dæmi um starfsheiti þessa starfs er s.s. verslunarstjóri, stöðvastjóri, rekstrarstjóri 

Útgáfa 2025.  

Starfaprófíll á pdf

Starf í vöruhúsi / á lager
Vinnuumhverfi í vöruhúsi / á lager getur verið afar mismunandi, allt frá litlum lagerum til stórra vöruhúsa.
Starf í vöruhúsi / á lager

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 1 miðað við hæfniramma um íslenska menntun. Starfið er á hæfniþrepi 1 samkvæmt ISQF.

Útgáfa 2023.

Starfaprófíll á pdf.

Starf við endurvinnslu
Starfsfólk við endurvinnslu vinna samkvæmt verklagsreglum. Verkefnin geta verið mjög fjölbreytt og fara alltaf eftir aðstæðum. Verkefnin felast einkum í að stuðla að aukinni endurnýtingu og draga úr úrgangi sem fer til urðunar.
Starf við endurvinnslu

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 1.1 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2023.

Starfaprófíll pdf

Starf við umönnun
Tilgangur starfsins er að veita fólki félagslegan stuðning, létta þjónustu og mynda tengsl við fólk. Styðja við færni og virkni fólks ásamt hvatningu við verkefni sem þarf að takast á við hverju sinni.
Starf við umönnun

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 1 miðað við hæfniramma um íslenska menntun. Endurskoðuð útgáfa 2024.

Starfaprófíll á pdf

Starf við þjónustu og ráðgjöf
Tilgangur starfsins er að sinna þjónustu og ráðgjöf við innri og ytri viðskiptavini á skilvirkan og faglegan hátt.
Starf við þjónustu og ráðgjöf

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma
um íslenska menntun.

Útgáfa 2025

Starfaprófíll á pdf

Starf við þrif og þjónustu
Tilgangur starfsins er að sjá um létt þrif samkvæmt starfslýsingu og fyrirmælum stjórnanda ásamt aðstoð við matar- og kaffitíma.
Starf við þrif og þjónustu

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 1 miðað við hæfniramma um íslenska menntun. Endurskoðuð útgáfa 2024.

Starfaprófíll á pdf

Starfsmaður í skjalaumsjón
Starfsmaður við skjalaumsjón stýrir skjölum í ákveðinn farveg samkvæmt lögum og kerfum sem eru í notkun innan fyrirtækis/stofnunar.
Starfsmaður í skjalaumsjón

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2017.

Starfaprófíll pdf

Starfsmaður í tækniþjónustu
Starfsmaður við tækniþjónustu er tengiliður fyrirtækisins við viðskiptavini þess sem þurfa tæknilega aðstoð.
Starfsmaður í tækniþjónustu

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 1 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2014.

Starfaprófíll pdf

Starfsþjálfi
Tilgangur starfsþjálfunar er að flýta fyrir yfirfærslu náms á starf og félagslegri aðlögun starfsmanns að starfi/starfsgrein.
Starfsþjálfi

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll pdf

Stuðningsfulltrúi (grunn- og framhaldsskóli)
Tilgangur starfsins er að aðstoða nemendur í námi og daglegum athöfnum. Veita nemendum (einstaka nemanda, smærri hópum eða heilum bekk) sem þurfa sérstakan stuðning, aðhald og aðstoð, til dæmis með því að vinna saman innan eða utan skólastofu eða í einstaklingsmiðuðu umhverfi.
Stuðningsfulltrúi (grunn- og framhaldsskóli)

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2024

Starfaprófíll á pdf

Sundlaugavörður
Tilgangur starfsins er að þjónusta gesti sundstaða og tryggja öryggi og velferð þeirra ásamt því að halda sundstaðnum hreinum.
Sundlaugavörður

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 og 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll pdf

Sviðsstjórn
Tilgangur starfsins er að halda utan um alla framkvæmd, stýra umferð og stjórna samskiptum í viðburðarrými. Starfið krefst náinnar samvinnu við stjórnendur viðburða.
Sviðsstjórn

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 4 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2023

Starfaprófíll á pdf

Tímabundin burðarvirki
Tilgangur starfsins er að setja upp tímabundin burðarvirki fyrir viðburði inni eða úti samkvæmt ósk viðskiptavina. Starfið er áhættusamt þar sem vinnan fer oft að hluta til fram í mikilli hæð ýmist í vinnulyftu eða krefst klifurs í burðarvirki.
Tímabundin burðarvirki

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2023

Starfaprófíll á pdf

Umönnun á hjúkrunarheimilum
Starfsmaður við almenna umönnun á hjúkrunarheimilum aðstoðar íbúa í þeim tilgangi að hámarka lífsgæði og viðhalda sjálfstæði og vellíðan þeirra.
Umönnun á hjúkrunarheimilum

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 1 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2017.

Starfaprófíll pdf

Umsjónarmaður fasteigna
Umsjónarmaður fasteigna í grunn- og framhaldsskóla. Tilgangur starfsins er yfirumsjón með húsnæði og lóð skólans, viðhaldi og eftirliti með þeim.
Umsjónarmaður fasteigna

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2024

Starfaprófíll á pdf

Vaktstjóri á skyndibitastöðum og kaffihúsum
Vaktstjóri sér um daglega verkstjórn vinnustaðarins og ber ábyrgð á staðnum í fjarveru yfirmanns.
Vaktstjóri á skyndibitastöðum og kaffihúsum

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 2 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll á pdf

Vaktstjóri aksturs / flotastjóri
Tilgangur með starfi flotastjóra er að hafa umsjón með og stýra daglegum verkefnum hóps bílstjóra.
Vaktstjóri aksturs / flotastjóri

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll pdf

Verkstjóri í fiskvinnslu
Megin viðfangsefni verkstjóra í fiskvinnslu er að skipuleggja vinnslu, ákveða hvaða vinnsluaðferðum er beitt og sjá til þess að rétt vara sé framleidd samkvæmt vinnslureglum.
Verkstjóri í fiskvinnslu

Hæfniþættir sem birtir eru í þessum starfaprófíl eru almennt á þrepi 3 miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

Útgáfa 2018.

Starfaprófíll pdf

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar