Fagbréf atvinnulífsins – starfsgreinar

Fyrir hvaða störf eru Fagbréf atvinnulífsins til?

Hægt er að öðlast Fagbréf byggt á starfaprófíl þar sem færni í starfi er metin. Einnig er í boði nám sem getur leitt til Fagbréfs. Starfsmenntasjóðir fjármagna ferlið hjá fyrirtækjum. Fræðslusjóður og aðrir aðilar fjármagna ferlið í gegnum nám. Ef um atvinnuleitendur er að ræða er horft til samstarfs fræðsluaðila, Vinnumálastofnunar og fyrirtækja vegna starfsþjálfunarhlutans.

Ef ekki er til Fagbréf atvinnulífsins fyrir starf?

Þegar Fagbréf er ekki til þarf að greina hæfniviðmið starfsins, hafi það ekki þegar verið gert. Hæfniviðmið starfs eru greind með hæfnigreiningu sem skilar starfaprófíl. Hæfnigreiningar eru ýmist unnar af sérfræðingum FA eða samstarfsaðilum sem sótt hafa viðeigandi þjálfun og fræðslu.  

Starfaprófílar í gagnagrunni FA

Hæfniviðmið raunfærnimats byggja á hæfnigreiningu. 

Ef þú ert með hugmyndir um starf sem mikilvægt er að sé til hæfniviðmið fyrir hafðu þá samband við sérfræðinga FA:

Fjóla María Lárusdóttir

fjola@frae.is

Haukur Harðarsson

haukur@frae.is

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar