Smiðja
Smiðja er 160 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 8 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem vilja kynnast fjölbreyttum vinnuaðferðum þar sem reynir á verkkunnáttu, sköpunarkraft, samhæfingu og fjölbreytt tjáningarform. Námskrá á pdf Námskrá í námskrárgrunni Námslýsingar fyrir smiðjur:
Skrifstofuskólinn
Skrifstofuskólinn er 360 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 18 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna almennum skrifstofustörfum með áherslu á tölvur, bókhald og skrifstofutækni. Námskráin á pdf Námskrá í námskrárgrunni
Skrifstofunám
Skrifstofunám er 160 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 8 framhaldsskólaeininga. Námið er fyrir þá sem hafa hug á að sinna almennum skrifstofustörfum eða sækja frekara nám á því sviði. Námskrá í námskrárgrunni Námskráin er þróuð af Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Skjalaumsjón
Skjalaumsjón er 160 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 8 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna starfi við skjölun og frágang skjala, með sérstakri áherslu á rafræna skjalastjórnun. Námskráin byggir á starfaprófílnum „Skjalaumsjón“, sem finna má hér Námskrá á pdf Námskrá […]
Samfélagstúlkur
Samfélagstúlkur er 130 klukkustunda nám á 3. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 6 eininga á framhaldsskólastigi. Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna starfi við samfélagstúlkun sem felst í því að miðla munnlega merkingu á milli aðila sem ekki tala sama tungumál, án þess að […]
Nám í stóriðju – framhaldsnám
Nám í stóriðju – framhaldsnám er 500 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 25 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem sinna starfi í stóriðju og hafa lokið námi samkvæmt námskránni Nám í stóriðju – grunnnám. Námskrá á pdf Námskrá í námskrárgrunni
Nám í stóriðju – grunnnám
Nám í stóriðju – grunnnám er 400 klukkustunda nám á 1. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 20 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem sinna starfi í stóriðju þar sem bræðsluofnar eða rafgreiningarker eru burðarásar í framleiðslunni. Námskrá á pdf Námskrá í námskrárgrunni
Móttaka og miðlun
Móttaka og miðlun er 60 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 3 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa við móttöku viðskiptavina og veita þjónustu og upplýsingar í samræmi við þjónustustefnu fyrirtækja. Námskrá á pdf Námskrá í námskrárgrunni
Meðferð matvæla
Meðferð matvæla er 60 kennslustunda nám sem mögulegt er að meta til 5 eininga. Námið er ætlað þeim sem starfa við eldi spendýra, fugla, fiska eða ræktun korns. Námskrá á pdf
Grunnnám fyrir skólaliða
Grunnnám fyrir skólaliða er 70 kennslustunda nám sem mögulegt er að meta til 6 eininga. Námið er einkum ætlað þeim sem hafa umsjón með grunnskólabörnum í frímínútum, í útivist og á matmálstímum auk þess að ræsta skólahúsnæði og sinna skyldum verkefnum á því sviði. Námskrá á pdf