Fagnámskeið fyrir starfsmenn í félags- og heilbrigðisþjónustu
Fagnámskeið fyrir starfsmenn félags- og heilbrigðisþjónustu er 210 klukkustunda nám á 1. til 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 10 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem annast um eða hlynna að sjúkum eða öldruðum á einkaheimilum eða stofnunum. Námskráin byggir á starfaprófílnum „Umönnun á hjúkrunarheimilum“, sem finna má hér Námskráin á […]
Fagnám í umönnun fatlaðra
Fagnám í umönnun fatlaðra er 324 klukkustunda nám á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun, sem mögulegt er að meta til 16 framhaldsskólaeininga. Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra og veita framsækna og metnaðarfulla þjónustu. Námskrá á pdf Námskrá í námskrárgrunni