Námsleiðin Grunnur I – nám, sjs, ens, og utn, nýtir fjóra námsþætti námskrár FA Grunnmennt. Námið er alls 115 klukkustunda vinnuframlag nema.
Námið er fyrir fólk sem vill efla sig í námstækni, samskiptum og sjálfstyrkingu ásamt því að styrkja færni sína í ensku og upplýsingatækni með það að markmiði að verða betur undirbúin til að takast á við verkefni sem tengjast þeim námsþáttum og jafnframt að undirbúa sig fyrir frekara nám. Námið er á hæfniþrepi 1 samkvæmt Hæfniramma um íslenska menntun.

Námsleiðin á pdf

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar