Forgangssvið við úthlutun í ár eru:
- Efla samstarf fræðsluaðila í þróun stafrænnar hæfni í kennslu, óháð búsetu.
- Gerð krafa um samstarf minnst þriggja fræðsluaðila
- Gerð og þróun rafrænna námsgagna, með áherslu á talað mál og menningu, í íslenskukennslu fyrir innflytjendur.
- Sérstök áhersla á neðri þrep evrópska tungumálarammans (A1, A2, B1)
- Hæfnigreiningar og starfaprófílar í samstarfi atvinnulífs og fræðsluaðila eða Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Við mat á umsóknum er m.a. litið til þess hvernig þær falla að markmiðum 2. greinar laga nr. 27/2010 um framhaldsfræðslu, faglega þekkingu og reynslu umsækjanda af að vinna verkefni sem sótt er um styrk til.
Að auki þurfa umsóknir að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Vera vandaðar og skýrt fram settar.
- Skýr tenging við markhóp laga um framhaldsfræðslu.
- Mæti sýnilegri þörf fyrir úrræði í framhaldsfræðslu.
- Hafi skýr skilgreind markmið og skilgreinda verkefnastjórn.
- Hafi skýra kostnaðar-, verk- og tímaáætlun.
- Skili hagnýtri afurð og verði vel kynnt.
Verkefnin skulu vera opin öllum fræðsluaðilum, mega ekki gera kröfu um umtalsverðan eða íþyngjandi kostnað, eða flókna sérfræðiþekkingu fyrir þá sem nýta sér afurðina.
Umsóknareyðublaðið á Word (til skoðunar)