Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf (FA)
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) er í eigu ASÍ, SA, BSRB, Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) og fjármála- og efnahagsráðuneytisins (fjr) og er samstarfsvettvangur og verkfærasmiðja eigenda í fullorðins- og starfsmenntun á íslenskum vinnumarkaði.
Framtíðarsýn FA er að vera leiðandi í að greina, meta og auka hæfni í atvinnulífinu.
Gildi FA eru Framsækni – Áreiðanleiki – Samstarf
Hlutverk FA er að veita fólki á vinnumarkaði, sem ekki hefur lokið námi frá framhaldsskóla, tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína. Miðað við tölur frá 2020 er markhópurinn um 24% fólks á vinnumarkaði (Hagstofa Íslands).
Til að sinna hlutverki sínu vinnur FA meðal annars að eftirfarandi verkefnum:
- Greina hæfnikröfur starfa á vinnumarkaði.
- Vinna að þróun og viðurkenningu raunfærnimats í samstarfi við atvinnulíf og fræðsluaðila.
- Auka framboð á vottuðu námi fyrir markhópinn byggt á hæfnigreiningum.
- Efla náms- og starfsráðgjöf meðal einstaklinga sem ekki hafa lokið námi á framhaldsskólastigi.
- Tryggja gæði í starfi fræðsluaðila með þróun og innleiðingu á gæðakerfi fyrir framhaldsfræðsluna.
- Taka þátt í innlendu og erlendu samstarfi þar sem hagsmunir atvinnulífs og markhópsins eru í fyrirrúmi.
- Miðla upplýsingum um árangur starfsins, nýjungar og þróun framhaldsfræðslu.
Eigendur og stjórn FA
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins er einkahlutafélag. Eigendur (og eignahluti) er sem hér segir:
- Samtök atvinnulífsins (40%)
- Alþýðusamband Íslands (40%)
- Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB)(10%)
- Fjármála- og efnahagsráðuneytið (5%)
- Samband íslenskra sveitarfélaga (5%)
Stjórnarmenn FA
Stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins er skipuð þannig:
Formaður:
Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir (ASÍ)
Varaformaður:
Maj-Britt Hjördís Briem (SA)
Meðstjórnendur:
Ásgrímur Örn Hallgrímsson (ASÍ)
Einar Mar Þórðarson (SÍS og fjr)
Fríða Rós Valdimarsdóttir (BSRB)
Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir (SA)
Jóna Jónsdóttir (SA)
Óskar Hafnfjörð Gunnarsson (ASÍ)
Varastjórn:
Guðný Björg Hauksdóttir (SA)
Jóhanna Þórdórsdóttir (BSRB)
Margrét Sigurðardóttir (SÍS og fjr)
Selma Kristjánsdóttir (ASÍ)