Ársskýrsla Fræðslusmiðstöðvar atvinnulífsins (FA) fyrir árið 2024 er komin út á rafrænu formi.
Árið 2024 var ár mikilla framfara og nýsköpunar í framhaldsfræðslunni, sem er fimmta stoð menntakerfisins. Þróunarvinna byggist sem áður á náni samvinnu og samstarfi við ýmsa hagaðila. Mikil aukning hefur orðið í gerð starfaprófíla í tengslum við nýja kjarasamninga sem fela í sér ákvæði um hæfnilaunakerfi og útgáfu Fagbréfa til vottunar á færni í starfi fjölgar stöðugt. Fyrsta keyrsla náms og starfsþjálfunar fyrir fatlað fólk var framkvæmd í nánu samstarfi við símenntunarmiðstöðvar, Vinnuálastofnun og Fjölmennt. Umfangsmikil undirbúningsvinna gagna og ferla lá hjá FA. Þá hefur sýnt sig að uppbrot námskráa hefur aukið sveigjanleika náms á vettvangi fyrir ýmsa hópa, þar á meðal innflytjenda sem hefur fjölgað mjög innan framhaldsfræðslunnar.
Í ársskýrslunni er að finna yfirlit yfir starfsemina og tölur yfir árangur starfsins á vettvangi framhaldsfræðslunnar. Alls luku 2.657 einstaklingar námi sem er 15% aukning frá árinu áður og af þeim voru 51% með erlendan ríkisborgararétt. Samtals fóru 580 einstaklingar í gegnum mat á raunfærni á árinu og 9.087 ráðgjafarviðtöl um nám og störf fóru fram.
Fram kemur í ávarpi Guðmundar Inga Kristinssonar mennta- og barnamálaráðherra að fullorðnu fólki þarf að standa til boða nám sem eflir grunnleikni og hæfni fyrir framtíðina með auknu aðgengi að sí- og endurmenntun og mati á raunfærni.
Lesið árskýrsluna hér:

Ársskýrsla Fræðslusjóðs er einnig komin út og hana má finna hér.