Föstudaginn 16. maí fór fram afhending Fagbréfa atvinnulífsins fyrir kjötskurð. Það voru sex einstaklingar sem starfa hjá Sláturfélagi Suðurlands á Hvolsvelli hafa með Fagbréfi fyrir kjötskurð fengið staðfestingu á sinn færni til að sinna kjötskurði. Samhliða því fær fyrirtækið betri yfirsýn yfir færni starfsmanna.
Ferli fyrir Fagbréf er að með raunfærnimati er færni starfsfólks metin út frá hæfniviðmiðum starfs. Í framhaldi fer fram þjálfun og fræðsla sem tekur mið af niðurstöðum matsins. Þegar öllum hæfniviðmiðum starfsins er náð er færnin staðfest með Fagbréfi atvinnulífsins fyrir viðkomandi starf.
Sláturfélag Suðurlands hélt utan um ferlið fyrir Fagbréf í heild sinni, það er raunfærnimat og skipulagningu og framkvæmd þjálfunar og fræðslu í kjölfarið. Það er í fyrsta sinn sem fyrirtæki fær vottun Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins til að halda utan um framkvæmd.
Áður hefur sérhæfðu starfsfólki í matvælavinnslu hjá Sláturfélagi suðurlands gefist kostur á að fá færni sína staðfesta með Fagbréfum.
Haukur Harðarson frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ávarpaði samkomuna og lýsti sýn FA á mikilvægi Fagbréfa til að auka sýnileika á færni og efla starfsþróun, starfsfólki og fyrirtæki til heilla.
Síðan tók við afhending Fagbréfa og sá Guðrún Elín Pálsdóttir formaður Verkalýðsfélags Suðurlands, Björg Bjarnadóttir framkvæmdastóri Starfsgreinasambands Íslands og Olga Mörk Valsdóttir verksmiðjustjóri um hana.
Athöfnin var hátíðleg og boðið upp á veitingar í lokin þar sem fólk gat notið samverunnar í húsakynnum Sláturfélags suðurlands á Hvolsvelli
Sjá upplýsingar um Fagbréf atvinnulífsins hér á vef FA
Frá afhendingu Fagbréfanna:


