Um Fræðslusjóð

Fræðslusjóður starfar samkvæmt lögum um framhaldsfræðslu nr. 27/2010. Samkvæmt þeim er hlutverk sjóðsins að stuðla að því að til séu viðeigandi námstækifæri fyrir einstaklinga með stutta formlega skólagöngu að baki, jafnframt því að taka þátt í að skapa skilyrði svo sömu einstaklingar geti nýtt sér slík námstækifæri. Framlög til Fræðslusjóð eru ákveðin í fjárlögum hvers árs. Stjórn Fræðslusjóðs ber ábyrgð á ráðstöfun fjár úr Fræðslusjóði og skal hún setja sérstaka skilmála fyrir fjárframlögum úr sjóðnum, sem ráðherra svo staðfestir. Í þeim skal koma fram hvernig meðferð umsókna er háttað og almenn skilyrði fyrir veitingu framlaga úr sjóðnum.

Úthlutanir Fræðslusjóðs greinast í meginatriðum í þrennt:

a. framlög til fræðsluaðila til að mæta kostnaði við kennslu og námskeiðahald,
b. framlög til að mæta kostnaði við raunfærnimat og náms- og starfsráðgjöf,
c. styrkveitingar til nýsköpunar- og þróunarverkefna í framhaldsfræðslu.

Ráðherra er heimilt að semja við til þess bæra aðila um að annast fjárreiður og umsýslu með sjóðnum. Jafnframt getur ráðherra falið stjórn Fræðslusjóðs að hafa umsjón með sérstökum verkefnum er tengjast framhaldsfræðslu og framkvæmd laga þessara.

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins annast umsýslu með Fræðslusjóði og fjárreiðum hans samkvæmt þjónustusamningi sem er í gildi milli aðila. Fara skal með fjármál sjóðsins í samræmi við lög nr. 88/1997 um fjárreiður ríkisins og reglugerðir sem settar eru á grundvelli þeirra laga.

Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs

Lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010

Reglugerð um framhaldsfræðslu 1163/2011

Stjórn Fræðslusjóðs

Ráðherra skipar Fræðslusjóði níu manna stjórn til fjögurra ára í senn. Formaður er skipaður án tilnefningar, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins tilnefna tvo fulltrúa hvort, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Félag íslenskra framhaldsskóla tilnefna einn fulltrúa hvort, fjármálaráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefna einn fulltrúa sameiginlega og velferðarráðuneyti einn. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.

Stjórn Fræðslusjóðs setur sér starfs- og úthlutunarreglur sem ráðherra staðfestir. Í þeim skal koma fram hvernig meðferð umsókna er háttað og almenn skilyrði fyrir veitingu framlaga úr sjóðnum.

Stjórn Fræðslusjóðs er þannig skipuð:

Aðalmenn:
Inga Dóra Halldórsdóttir, formaður, skipuð án tilnefningar
Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands
Finnbogi Sveinbjörnsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
Karl Rúnar Þórsson, tilnefndur af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
Gylfi Jónu Arnbjarnarson, tilnefndur af Mennta- og barnamálaráðuneyti
Margrét Sigurðardóttir, tilnefnd sameiginlega af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fjármála- og efnahagsráðuneyti
Maj-Britt Hjördís Briem, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
Hulda Birna Baldursdóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
Helga Kristín Kolbeins, tilnefnd af Skólameistarafélagi Íslands

Varamenn:
Hulda Anna Arnljótsdóttir, varaformaður, skipuð án tilnefningar
Stefán Sveinbjörnsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
Eyrún Björk Valsdóttir, tilnefnd af Alþýðusambandi Ísland
Dagný Björk Erlingsdóttir, tilnefnd af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
Jóhanna Þórunn Pálsdóttir, tilnefnd af Mennta- og barnamálaráðuneyti
Einar Mar Þórðarsson, 
tilnefndur sameiginlega af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fjármála- og efnahagsráðuneyti
Ólafur Garðar Halldórsson, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
Páll Ásgeir Guðmundsson, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
Sigurbjörn Árni Arngrímsson, tilnefndur af Skólameistarafélagi Íslands

 

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar