Upplýsingaöryggi fyrir fullorðna námsmenn

Í nýrri Gáttar grein fjalla Hrannar Baldursson og Guðjónína Sæmundsdóttir, frá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, um þátttöku MSS í Erasmus+ verkefninu Cyber Clever. Þar voru kannaðar aðstæður í fimm þátttökulöndum og í kjölfarið hannað fimm daga námskeið í upplýsingaöryggi sem skiptist í eftirfarandi þætti:

  • Persónuvernd
  • Aðferðir til að hakka og öryggi lykilorða
  • Samfélagsmiðlar og hreinlæti á netinu
  • Stafrænir veikleikar
  • Netöryggi

Fyrirlestrar eru stuttir en áhersla lögð á verklegar æfingar, myndbönd, hagnýt verkefni og samræður.

Lesið greinina á vef Gáttar:

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar