Tillögur að auknum náms- og starfstækifærum fyrir fatlað fólk

Starfshópur um aukin náms- og starfstækifæri fyrir fatlað fólk hefur lagt til aukið samstarf milli Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Fjölmenntar. Tillögurnar fela meðal annars í sér að aukið verði aðgengi fatlaðs fólks að vottuðu starfstengdu námi innan framhaldsfræðslu sem lýkur með réttindum samkvæmt Fagbréfi atvinnulífsins.

Starfshópnurinn skilað skýrslu til ráðherra í síðustu viku, en hópnum var ætlað að greina núverandi starfs- og menntunartækifæri fatlaðs fólks með tilliti til þess hvað þurfi að bæta, auk þess að leggja fram tillögur að aðgerðum.  

Skýrsluna má lesa hér Skýrsla starfshóps um aukin náms- og starfstækifæri fyrir fatlað fólk: ,,Við erum öll ólík og öll eins“

Meðal þess sem hópurinn leggur til í skýrslunni er að gerð verði þriggja ára áætlun sem feli í sér breytingar á skipulagi starfsbrauta framhaldsskóla. Markmið þess yrði að mæta betur þörfum og væntingum fatlaðra nemenda með sérstakar námsþarfir og gera það á opinni námsbraut. Meðal tillagna á háskólastigi er að aðfaranám verði aðgengilegt fyrir öll, í alla háskóla, og að framboð verði aukið á starfstengdu námi og á styttri námsleiðum.  

Á vettvangi framhaldsfræðslu verði samstarf Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Fjölmenntar eflt eins og áður sagði. Þá verði fræðsla og stuðningur efld við kennara og starfsfólk háskóla og fræðasamfélagsins, sem og kennara og starfsfólk fræðslu- og símenntunarmiðstöðva um land allt.  

Einnig leggur hópurinn til aukið samstarf Vinnumálastofnunar og vinnustaða og virkniúrræða sem eru sérstaklega aðgreind fyrir fatlað fólk. Markmiðið er að styðja betur við og efla þátttöku fatlaðs fólks á almennum vinnumarkaði.  

Sara Dögg Svanhildardóttir var formaður starfshópsins en í hópnum áttu sæti fulltrúar ráðuneyta og stofnana sem að málaflokknum koma, auk fulltrúa frá hagsmunasamtökum fatlaðs fólks, samtökum aðila vinnumarkaðarins og fræðsluaðilum. 

Nánari frétt um málið má lesa á vef stjórnarráðsins hér.

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar