Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hélt tvo fundi á dögunum með samstarfsaðilum um framþróun og gæði ráðgjafar og raunfærnimats.

Fyrri fundurinn var árlegur haustfundur náms- og starfsráðgjafar á vettvangi framhaldsfræðslunnar þar sem sjónum var beint að leiðum til aukinnar inngildingar og nýjungum í ráðgjöf.
Fulltrúi verkefnisins Sprettur á vegum Háskóla Íslands sagði frá hvernig unnið er að inngildingu innan HÍ, helstu áskorunum og nýlegum rannsóknum á sviðinu. Kynningar voru á þróunarverkefnum tengdum inngildingu hjá Mími og MSS þar sem horft er til þarfagreininga og praktískra leiða til að skilja og mæta þörfum innflytjenda. Farið var yfir skilgreiningu á hugtakinu taugafjölbreytileiki (neurodiversity), rýnt í mismunandi birtingamyndir og mikilvægi þess að skapað sé umhverfi fyrir ólíkar þarfir. Þá var farið yfir nýtingu á stafrænni tækni í ráðgjöf og siðferðileg viðmið. Að auki fór erlendur sérfræðingur yfir þær kenningar sem mest eru nýttar í starfsferilsráðgjöf í dag, fjölbreytni þeirra og notagildi. Samtals voru 35 þátttakendur á fundinum sem fór fram í húsakynnum Eflingar.

Seinni fundurinn var vinnufundur fyrir verkefnastjóra í raunfærnimati hjá samstarfsaðilum FA. Fjallað var um verkefni þar sem raunfærnimat er nýtt til styttingar á námi og verkefni þar sem raunfærnimat er nýtt til að staðfesta hæfni til ákveðinna starfa. Markmið vinnustofunnar er að miðla reynslu og greina tækifæri til að efla raunfærnimat innan framhaldsfræðslukerfisins.
Mæting var góð, þátttakendur frá samstarfsaðilum voru um 40 auk starfsfólks FA.
Um var að ræða sambland af stuttum erindum og hópavinnu. Erindin fjölluðu meðal annars um tölfræði, verkefnastýringu, samvinnu við framhaldsskóla og rafrænt umsýslukerfi sem er í smíðum. Í hópavinnu var m.a. fjallað um helstu sóknarfæri en einnig áskoranir auk hvernig mætti efla samstarf milli framkvæmdaaðila og tækifæri til að bæta þjónustu FA vegna verkefnastýringar.
Vinnustofan var gott veganesti inn í starfið næsta vetur
