Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) heldur námskeið um raunfærnimat til styttingar á námi 13. og 14. mars 2024.
Námskeiðið er ætlað matsaðilum, verkefnastjórum og ráðgjöfum sem koma að raunfærnimatsverkefnum. Einnig eru hagsmunaaðilar sem vilja kynna sér framkvæmd raunfærnimats velkomnir.
Ekkert námskeiðsgjald er, en FA greiðir hvorki fyrir ferðir né uppihald þátttakenda.
Námskeiðið verður haldið hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Skipholti 50b, þriðju hæð.
Nú er orðið fullt á námskeiðið. Næsta námskeið verður haldið í haust.
Tímar námskeiðs
Miðvikudagur 13. mars kl. 10:15 – 16:00
Fimmtudagur 14. mars kl. 09:00 – 16:00
Námskeiðslýsing
Tilgangur námskeiðanna er að kynna fyrir þátttakendum hugtakið raunfærnimat og þjálfa þá í því að vinna við raunfærnimat samkvæmt því ferli sem þróað hefur verið hér á landi. Námskeiðið er liður í að formfesta raunfærnimatsferlið, stuðla að gæðum og mæta síauknum þörfum. Námskeiðið er um 13 klukkustundir.
Leiðir á námskeiðinu
Á námskeiðinu verður farið yfir skilgreiningu á raunfærnimati, reglugerðir, lög og framkvæmd. Farið verður yfir það raunfærnimatsferli sem þróað hefur verið hér á landi og greiningardæmi tekin til glöggvunar á framkvæmd þess. Lögð er áhersla á almenna virkni þátttakenda í gegnum umræður og æfingar í hópum þar sem þátttakendur fá tækifæri til að byggja upp færni í að meta raunfærni á uppbyggilegan og réttmætan hátt og finna lausnir á álitamálum.
Reglugerð no.1163
Þann 30. október 2011 kom út reglugerð vegna framhaldsfræðslulaga og þar segir m.a.: Sérfræðingar sem annast raunfærnimat skulu hafa aflað sér fullnægjandi þekkingar og þjálfunar í mati á raunfærni samkvæmt kröfum mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Leiðbeinendur
Frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins eru leiðbeinendur á námskeiðinu Haukur Harðarson og Fjóla María Lárusdóttir.