Samtal um framkvæmd og þróun raunfærnimats

Starfsmenn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins heimsóttu nýverið þrjár  símenntunarmiðstöðvar, IÐAN fræðslusetur, Mími og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS), í þeim tilgangi að kynna sér framkvæmd og þróun raunfærnimats. Hlutverk miðstöðvanna í raunfærnimati eru ólík. IÐAN sinnir raunfærnimati í löggildum iðngreinum, MSS og Mímir sinna raunfærnimati tengdu starfsmenntun, starfhæfni og fagbréfum.

Í heimsóknunum kom fram að raunfærnimat gegnir mikilvægu hlutverki við að gera reynslu og færni fólks sýnilega, styðja við starfsþróun og opna leiðir til frekara náms. Raunfærnimatið hefur jafnframt jákvæð áhrif á sjálfstraust þátttakenda og virkni á vinnumarkaði. Í því samhengi var rætt um mikilvægi raunfærnimats í almennri starfshæfni fyrir einstaklinga í starfsendurhæfingu eða þá sem hafa verið utan vinnumarkaðar um tíma.

Lögð var áhersla á mikilvægi náms- og starfsráðgjafar í gegnum allt ferlið, allt frá skimun til stuðnings og eftirfylgni, til að tryggja að raunfærnimatið nýtist þátttakendum við áframhaldandi nám eða starfsþróun. Jafnframt var fjallað um mikilvægi matsaðila og sérþekkingar þeirra sem eina helstu forsendu gæða í raunfærnimati og fram kom vilji til að efla enn frekar samráð, stuðning, samstarf og símenntun matsaðila.

Þrátt fyrir jákvæða reynslu af framkvæmdinni komu fram ýmis tækifæri til þróunar. Meðal annars mikilvægi þess að uppfæra mats- og skimunarlista samhliða breytingum á námskrám. Í heimsóknunum var jafnframt fjallað um áskoranir tengdar ráðningu matsaðila og að fá þátttakendur í stýrihópa. Rætt var um mögulegar leiðir til að efla samstarf á landsvísu, með samræmdu verklagi sem auðveldi miðstöðvum að finna matsaðila og samnýta stýrihópa á landsvísu.

Heimsóknirnar  leiddu glöggt í ljós þá þekkingu og reynslu á raunfærnimati sem byggst hefur upp innan miðstöðvanna og það frábæra starf sem þar fer fram. Jafnframt komu fram fjölmörg tækifæri til frekari þróunar og samhæfingar, m.a. í tengslum við rafrænt raunfærnimatskerfi sem verið er að vinna að hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Samstarf og samtal við framkvæmdaraðila um land allt er mikilvæg forsenda þess að raunfærnimat geti áfram þróast og mætt þörfum einstaklinga, atvinnulífs og samfélags.

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar