Tilkynnt var haustið 2024 að áherslubreytingar og nafnabreyting yrði á NVL árið 2025, en nafninu hefur verið breytt í NLL (Nordisk Netværk for Livslang Læring) sem þýtt hefur verið yfir á íslensku sem Norrænt samstarf um símenntun. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hýsir NLL á Íslandi.
„Samstarf NLL og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins eflir þróun símenntunar með því að skapa ný, aðgengileg og sjálfbær fræðslutækifæri. Undanfarin misseri hefur samstarfið beinst að þátttöku og valdeflingu ungs fullorðins fólks af erlendum uppruna í námi, starfi og samfélagi. Með virkri þátttöku fjölbreyttra hagsmunaaðila, þar á meðal innflytjenda sjálfra, er tryggt að lausnirnar sem þróast séu hagnýtar og mæti raunverulegum þörfum.
Þátttaka í samstarfi og viðburðum NLL styrkir alþjóðleg tengsl FA, skapar íslenskum fagaðilum verðmæt tækifæri til jafningjanáms og samstarfs, auk þess að auka sýnileika íslenskra verkefna á Norðurlöndunum. Íslenski hluti NLL vefsins á nll.org veitir íslenskum fagaðilum og stefnumótendum innblástur með birtingu norrænna frétta, greina og skýrslna á íslensku.“ Antra Carlsen, framkvæmdastjóri Norræns samstarfs um símenntun.
NLL er norrænt tengslanet um nám fullorðinna og norrænn vettvangur fullorðinsfræðslu þar sem athygli er beint að nýsköpun, miðlun og árangri. NLL hvetur til samræðu og þverfaglegs samstarfs á milli ólíkra tengslaneta, kemur á nýjum netum og eflir framlag þeirra til norræns samstarfs. Fulltrúi Íslands er Hrannar Baldursson, sérfræðingur hjá FA. Íslendingar taka þátt í fjölmörgum undirnetum NLL þar á meðal starfsmenn FA. Nánari upplýsingar má finna á www.nll.org