Norræn ráðstefna í Reykjavík í október

Lærum, vinnum, vöxum – Norræn ráðstefna um símenntun í atvinnulífinu.

Ráðstefnan leiðir saman sérfræðinga sem starfa við fullorðinsfræðslu og starfsþróun víðs vegar á Norðurlöndunum.

Megináhersla ráðstefnunnar er nám á vinnustað sem lykilþáttur í símenntun. Á ráðstefnunni verður skoðað hvernig fyrirtæki, stofnanir og  fræðsluaðilar stuðla að starfsþróun á vinnustað og hvernig menntastofnanir leggja sitt af mörkum með faglegum stuðningi, samstarfi og nýsköpun.

Ráðstefnan er opin öllum sem áhuga hafa á  fræðslumálum á breiðum vettvangi fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka.

Ráðstefnan fer fram á Hilton Reykjavík 20. október kl. 9:30-16:00. Fyrirlestrar fara fram á ensku. Erindi í málstofum eru ýmist á ensku eða íslensku.

Nánar um ráðstefnuna

Skráning hér

Ráðstefnan er haldin í samstarfi við:

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar