Námskráin Sundlaugarvörður er 200 klukkustundir og byggir á samnefndum starfaprófíl og eldri námskrá. Námskráin lýsir námi á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun og er ætlað þeim sem starfa eða hafa hug á að starfa við sundstaði. Markmið námsins er að tryggja að þau sem ljúka því séu fær um að þjónusta gesti sundstaða og tryggja öryggi þeirra og velferð ásamt því að halda sundstaðnum hreinum.

Lögð er áhersla á að þátttakendur í náminu öðlist hæfni í að vinna samkvæmt verklagi um öryggi ásamt því að geta fylgt þeim kröfum sem settar eru fram samkvæmt lögum og reglum. Jafnframt er lögð áhersla á sjálfstæð og öguð vinnubrögð og að efla samvinnu- og samskiptafærni nema. Tilgangur námsins er að styrkja jákvæð viðhorf námsmanna til starfsgreinarinnar, efla færni og faglega þekkingu til að takast á við helstu viðfangsefni og aukna ábyrgð í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi í starfi í sundlaugum.

Námskráin er unnin af SÍMEY, Símenntunarmiðstöð Eyjafjarða

Námskráin á pdf

Námskráin í námskrárgrunni

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar