Ferðaþjónusta –  Veitingasalur er 130 klukkustunda nám sem er 6,5 einingar á framhaldsskólastigi og er á öðru þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námið er sjálfstætt framhald af námskránum Ferðaþjónusta I og Ferðaþjónusta II. Námskráin byggir á starfaprófílnum „Þjónusta í veitingasal” en einnig er tekið mið af ítarlegri greiningu á störfum almennt í ferðaþjónustu.

Markmið námsins er að búa þátttakendur undir fjölbreytt þjónustustörf í veitingasal s.s. móttöku gesta, viðeigandi upplýsingagjöf, að taka á móti pöntunum og þjóna til borðs.

Námskráin á pdf

Námskrá í námskrárgrunni

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar