Noelinie Namayanja og Sigurður Kristinn Guðmundsson hljóta viðurkenninguna fyrirmyndir í námi fullorðinna á þessu ári. Viðurkenningarnar voru veittar við hátíðlega athöfn á ársfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) sem fram fór í 13. nóvember s.l. Viðurkenningin er veitt árlega þeim einstaklingum sem hafa bætt stöðu sína eftir þátttöku í leiðum framhaldsfræðslunnar og sýnt framúrskarandi árangur. Fyrirmyndirnar fengu veglega gjöf frá Origo.
Noelinie, er tilfnefnd af Fræðslunetinu á Suðurlandi. Hún kom til Íslands frá Úganda árið 2013, Haustið 2015 skráði hún sig í Íslensku II. Haustið 2018 skráði Noelinie sig í nám á Félagsliðabrú eftir viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa Fræðslunetsins. Það sama haust skráði hún sig líka í Menntastoðir. Hún lauk 28 einingum í Menntastoðum vorið 2019 og útskrifaðist sem félagsliði frá Fræðslunetinu vorið 2020. Noelinie hefur lokið fjöldamörgum námskeiðum fyrir sjúkraliða hjá Framvegis og þetta haustið er hún skráð á 3 námskeið. Haustið 2020 hóf Noelinie nám á sjúkraliðabrú við Fjölbrautarskólann í Breiðholti og útskrifaðist sem sjúkraliði í desember 2022. Samhliða félagsliðanáminu var Noelinie að vinna á hjúkrunarheimili á Seltjarnarnesi en í dag starfar hún á Landsspítala, Grensásdeild.
Noelinie hefur sýnt framfarir í námi og haldið ótrauð áfram og fylgt þeim markmiðum sem hún setti sér. Hún hefur látið drauma sína rætast, lært íslensku, farið í nám, hefur náð sér í starfsréttindi og er nú komin á þann stað sem hún er á í dag. Hún hefur sýnt mikla seiglu og er því verðugur fulltrúi sem fyrirmynd í námi fullorðinna. Á ársfundinum deildi sinni vegferð í námi og sagði“Markmið mitt er að læra hjúkrun“.
Sigurður er tilnefndur af Mími, símenntun. Hann er fertugur og starfar hjá Krónunni. Hann hóf framhaldskólanám að loknum grunnskóla en missti áhugann og hætti. Í kjölfarið ályktaði hann að skólaganga væri ekki fyrir sig og fór út á vinnumarkaðinn og hefur unnið við verslunarstörf síðastliðin 20 ár. Á síðasta ári fékk Sigurður kynningu á raunfærnimati í verslun og þjónustu í Krónunni þar sem slíkt mat stóð starfsfólkitil boða, það kveikti áhuga hans og tók hann þátt í raunfærnimatinu hjá Mími. Hann fann fyrir stuðningi og áhuga í ferlinu sem lauk með Fagbréfi sem staðfestir þekkingu hans og kunnáttu í starfinu.
Á ársfundi FA sagði Sigurður að ,,með fagbréfinu fékk ég viðurkenningu á minni þekkingu og færni eftir tuttugu ár í verslunarstarfi.“ Hann hvatti aðra til að nýta sér tækifærið og fá þessa mikilvægu viðurkenningu.
Saga fyrirmyndanna endurspeglar upplifun fjölmarga fullorðinna sem sækja námsleiðir, raunfærnimat og önnur verkfæri framhaldsfræðslunnar. Mikilvægt er að fullorðnir eigi möguleika á að hefja nám að nýju og fái viðeigandi stuðning til þess að fá sína hæfni og reynslu metna. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins óskar þeim báður innilega til hamingju með viðurkenninguna.