„Ekki gefast upp“ – Árangur í starfsnámi sýnir fram á nauðsyn samfellu í kerfinu.

Starfstengda námskráin Færni á vinnumarkaði hefur veitt einstaklingum sem hafa staðið höllum fæti, tækifæri til að fara út á vinnumarkaðinn og nýta sína færni.

Færni á vinnumarkaði er starfstengd námskrá sem lítur að námi og þjálfun til að efla færni fatlaðra einstaklinga til atvinnuþátttöku og byggir á því að styðja þessa einstaklinga í að komast út á vinnumarkaðinn. Námskráin er kennd í símenntunarmiðstöðvum um land allt og er unninn í samstarfi þeirra og vinnustaða á svæðunum.

Árangur sem talar sínu máli

Þessi námskrá er afrakstur verkefnis á vegum félags- og vinnumarkaðsráðuneytis (FVRN) sem snýst um að auka náms- og starfstækifæri fyrir fatlað fólk. Verkefnið var unnið í samstarfi Fjölmenntar, Vinnumálastofnunnar (VMST) og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) og hefur verið keyrð frá árinu 2024. Á þessum tíma hafa 84 einstaklingar lokið þessu námi og farið í vinnu í kjölfarið.

„Gefast upp er það versta“

Í Kastljósi á dögunum var viðtal við einn þessara einstaklinga, Daníel Smára Bjarnason, sem sótti námið hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og starfar nú hjá Jóhann Rönning á Akureyri. Í viðtalinu leggur Daníel áherslu á að gefast ekki upp, því að ,,gefast upp er það versta. Því meira sem þú heldur áfram því lengra kemstu“. Saga Daníels er skýrt dæmi um þann mannauð sem losnar úr læðingi þegar réttur stuðningur er til staðar.

Hlustið á viðtalið við Daníel í Kastljósi hér.

Áskoranir í innleiðingu og samfellu

Hildur Betty Kristjánsdóttir var í morgunútvarpi Rásar 2 í dag og var spurð um þetta færniúrræði. Þar lagði hún áherslu á mikilvægi þess að allir hafi aðgengi að fjölbreyttu námi og störfum á vinnumarkaði því er mikilvægt að tryggja samfellu á milli skólakerfa og atvinnulífs. Færni á vinnumarkaði opnar ekki einungis ný tækifæri fyrir nemandann, heldur vinnumarkaðinn, menntakerfið og samfélagið. Við erum eitt samfélag með fjölbreytta færni og mikilvægt að allir finni til sín í lífi, námi og starfi. Við þurfum því að tryggja þessu námi varanlegan farveg. 

Hlustið á viðtalið við Hildi Betty á Rás tvö hér.

Vinnumálastofnun og símenntunarmiðstöðvar um land allt gefa nánari upplýsingar um námið.

Á mynd: Fannar Freyr Gíslason, þjónustustjóri Fagkaupa á Norðurlandi og Daníel Smári Bjarnason, þjónustufulltrúi Fagkaupa á Norðurlandi.

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar