Ársfundur FA: Tökum næsta skref!

Samstarf um skýra hæfnistefnu 

3. FEBRÚAR 2022 kl. 10-11:30

Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) verður haldinn í samstarfi við NVL fimmtudaginn 3. febrúar 2022, undir yfirskriftinni Tökum næsta skref – Samstarf um skýra hæfnistefnu.  Á fundinum verður leitast við að varpa ljósi á mikilvægi víðtæks samstarfs mennta- og atvinnulífs við gerð hæfnistefnu. Ákvörðun um stefnumörkun liggur fyrir í aðgerðaráætlun með menntastefnu 2020-2030 en hvað þarf til svo að vel takist?  

Margrethe Svensrud, forstöðumaður deildar um vinnufærniþróun hjá HK-dir (Norwegian Directorate for Higher Education and Skills) kynnir hæfnistefnu Norðmanna og árangurinn af henni. Karl Sigurðsson, sérfræðingur BSRB á sviði framtíðarvinnumarkaðarins og menntamála, fjallar um þörf fyrir störf í framtíðinni og hvaða leiðir eru færar til að spá fyrir um hana. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs Samtaka atvinnulífsins og framkvæmdastjóri FA, fjalla um ávinning af skýrri hæfnistefnu og samspil hennar með menntastefnu fyrir atvinnulífið.  

Fyrirmyndir í námi fullorðinna verða kynntar og viðurkenningar til þeirra afhentar. 

DAGSKRÁ: 

Ávarp ráðherra
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumálaráðherra

Viðbrögð við hæfniþörf – Hvað þarf til? 
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs Samtaka atvinnulífsins  

Upp úr hjólförunum – Tökum næstu skref 
Framkvæmdastjóri FA  

Hæfnistefna Norðmanna 
Margrethe Svensrud, forstöðumaður deildar um vinnumarkað og hæfni hjá HK-dir (Norwegian Directorate for Higher Education and Skills) Erindið fer fram á ensku.

Breyttur heimur – Færniþörf og áherslur í menntamálum 
Karl Sigurðsson, sérfræðingur BSRB á sviði framtíðarvinnumarkaðarins og menntamála 

Fyrirmyndir í námi fullorðinna 
Verðlaunahafar kynntir og afhending viðurkenninga 

Dagskrá stendur frá kl. 10 til 11:30 og verður í streymi á fésbókar-síðu FA. 

Skráning hér

Upptaka frá fundinum:

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar