Alþjóðleg ráðstefna um raunfærnimat í Reykjavík í maí 2022

Alþjóðleg ráðstefna um raunfærnimat – Reykjavík 19. og 20. maí 2022

Mat á raunfærni byggist á þeirri hugmynd að nám fari fram við margs konar aðstæður og í alls konar samhengi. Allt nám er verðmætt og því mikilvægt að það sé skjalfest óháð hvar þess hefur verið aflað. Ráðstefnan er suðupottur fyrir þróun raunfærnimats og fjallað verður um raunfærnimat í fjölbreyttu samhengi eftir ýmsum leiðum í lífi og starfi.

Ráðstefnur sem þessi  eru haldnar á tveggja ára fresti og nú er komið að Reykjavík. Fyrsta var í Rotterdam, önnur í Árósum og þriðja í Berlín.

Þemu ráðstefnunnar eru:

  • Raunfærnimat og atvinnulífið
  • Raunfærnimat og nám/þjálfun
  • Raunfærnimat og félagsleg sjálfbærni
  • Raunfærnimat og persónuleg þróun
  • Jafnframt verða kynntar nýjar rannsóknir í raunfærnimati.

Leitað verður svara við spurningunni: Hvernig getur raunfærnimat orðið órjúfanlegur hluti framkvæmdar og stefnumörkunar til að styðja við símenntun?

Þátttakendur fá tækifæri til að:

  • Hlusta á leiðandi sérfræðinga fjalla um þróun raunfærnimats
  • Taka þátt í vinnustofum um árangursrík verkefni og umræðum í kjölfar kynninga
  • Hafa áhrif á þróun raunfærnimats og efla tengslanet

Ráðstefnan er í umsjón Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) á Íslandi í samstarfi við Norræna tengslanetið um nám fullorðinna (NVL) og CEDEFOP. Fulltrúar EC-VPL, Evrópusambandsins, CEDEFOP, UNESCO og Sænska landsskrifstofan fyrir fagháskóla (MYh) taka þátt í stýrihópi til að styðja við árangursríkar niðurstöður.

Ráðstefnan fer fram á Grand Hótel í Reykjavík

  1. Skráning HÉR og upplýsingar um hótel og verð í Reykjavík.
  2. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna verður hægt að finna HÉR
  3. Morgunfyrirlestrum verður streymt og hægt að skrá sig á þá sérstaklega eða vera með á staðnum og taka þátt í allri dagskránni.

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar