Framundan eru tvær vefstofur á vegum NVL (Nordisk Netwærk for Voksens Læring) þar sem greinar um grunnfærni og starfræna tækni í kennslu verða kynntar annarsvegar og um námsframboð fyrir fólk með stutta skólagöngu að baki hinsvegar.
Fyrri vefstofa var 28. september 2022 og þar verður fjallað um tvær greinar : Stafrænt líf (frá Svíþjóð) – og – Umsjónarkennarar aðstoða starfsfélaga í að auka stafræna hæfni sína (frá Finnlandi).
Seinni vefstofan var þann 4.október 2022 og þar er umfjöllunarefnið: Hvernig náum við til þeirra sem þurfa að afla sér aukinnar færni í grunnleikni? Dæmi frá Danmörku
Báðar vefstofurnar voru teknar upp og má horfa á þær á YouTube rás Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins hér.
NVL Grunnleikninetið hefur gefið út áhugaverðar greinar um grunnleikni á Norðurlöndunum, hér má nálgast greinar sem þýddar hafa verið á íslensku á vef NVL. Fyrir neðan eru greinarnar sem birtar hafa verið í Gátt.
Boðið er upp á umræður við höfunda á báðum vefstofunum.
Inn á síðu nvl.org er slóð á upplýsingum um vefstofuna og skráningu. Viðburðurinn er á ensku þar sem höfundar greinanna eru frá Svíþjóð og frá Finnlandi.