Ávinningur af raunfærnimati er mikill fyrir einstaklinga, menntakerfið, atvinnulífið og samfélagið. Það skilar einnig miklu fyrir Ríkissjóð, en áætlaður beinn ávinningur fyrir ríkisjóð vegna raunfærnimats á árunum 2021–2025 nemur um 2,4 milljörðum króna. Raunfærnimat er öflugt verkfæri sem skilar ávinningi en til að sá ávinningur skili sér að fullu þarf sérstakt fjármagn, greiða leið áfram í nám og samstarf allra aðila. Þetta kom fram á ársfundi FA sem var haldinn 12. nóvember s.l. þar sem Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA og sérfræðingar frá CEDEFOP og Svíþjóð tóku meðal annarra til máls.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra opnaði fundinn og lagði áherslu á að raunfærnimat breyti lífi fólks, það viðurkennir hæfni þeirra sem hættu snemma í námi en hafa áratuga reynslu. Hún nefndi sérstaklega unga fólkið sem dettur á milli skips og bryggju og lofaði stuðningi ráðuneytisins.
Í erindi Bjarna Benediktssonar, framkvæmdastjóra SA kom fram að færni dagsins í dag ráði verðmætasköpun morgundagsins. Raunfærnimat gagnast bæði einstaklingum og fyrirtækjum, ekki síst nú þegar störf breytast vegna stafrænnar þróunar, gervigreindar og orkuskipta. Hann lagði áherslu á að fólk komist í það nám sem það á eftir að loknu matinu, til dæmis með fagbréfum atvinnulífsins.
Á fundinum fóru Ernesto Villalba, sérfræðingur frá Cedefop og Marcus Karlssonar, sérfræðingur hjá Landsskrifstofu fagháskóla í Svíþjóð yfir stöðu raunfærnimats í Evrópu í heild og Svíþjóð sérstaklega. Þar kom fram að í Evrópu er lagagrunnurinn fyrir raunfærnimat víðast kominn en það vantar fjármagn og raunverulega framkvæmd. Einstaklingurinn þarf að vera í miðjunni og samræmi að vera milli kerfa, meðal annars í gegnum hæfniramma. Í Svíþjóð voru tæplega 21.000 raunfærnimöt innan atvinnugreina árið 2025. Tilraunaverkefnið HYF-flex í Svíþjóð greiddi skólum sérstaklega fyrir raunfærnimat. Nemendur fengu að meðaltali 44% eininga metin og 77% luku námi fyrr en ella. Ríkið sparaði 44%. Helsti lærdómurinn þaðan: raunfærnimat stækkar þegar það er fjármagnað sérstaklega og þegar einstaklingsmiðuð viðbótarþjálfun fylgir.
Hildur Betty Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, og Eyrún Valsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ, fjölluðu um umfang og ávinning raunfærnimats í sínu erindi. Raunfærnimat hófst á Íslandi árið 2007 og síðan þá hafa yfir 9.000 einstaklingar fengið færni sína metna, annaðhvort til styttingar á námi eða með hliðsjón af hæfnikröfum starfa. Nú er hægt að fara í raunfærnimat í um 60 starfsgreinum hér á landi.
Í erindinu var sérstaklega fjallað um niðurstöður áranna 2021–2025. Á því fimm ára tímabili voru metnar samtals um 124.750 framhaldsskólaeiningar. Það jafngildir um 2.079 skólaárum.
En hvað þýða þessi 2079 skólaár í fjárhagslegu samhengi?
Áætlaður kostnaður við raunfærnimat á tímabilinu 2021–2025 var um 717 milljónir króna. Ef samsvarandi fjöldi skólaára hefði verið tekinn með hefðbundnum hætti í framhaldsskóla er áætlað að kostnaðurinn hefði numið um 3,12 milljörðum króna. Áætlaður beinn kostnaðarmunur fyrir ríkið er því um 2,4 milljarðar króna á tímabilinu.
Raunfærnimat felur ekki aðeins í sér fjárhagslegan ávinning. Með því er viðurkennd sú hæfni sem fólk hefur þegar öðlast í starfi, námi og daglegu lífi. Matið getur stytt leiðina að námslokum, aukið sýnileika hæfni og auðveldað fólki að byggja áfram á þekkingu sinni og reynslu. Niðurstöðurnar sýna að raunfærnimat er mikilvæg leið til að nýta betur þann mannauð sem þegar er til staðar. Ávinningurinn nær þannig til einstaklinganna sjálfra, menntakerfisins, atvinnulífsins og samfélagsins í heild.
Í pallborði fundarins tóku Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs; Helga Kristín Kolbeins, skólameistari framhaldsskólans í Vestmannaeyjum; Eyjólfur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri Fræðslunets Suðurlands og Anton Már Gylfason, aðstoðarskólameistari Borgarholtsskóla þátt. Þau ræddu jafnframt hvernig viðurkenning á raunfærnimati hefur aukist og að ekki sé lengur litið á það sem „afslátt“. Það er þó enn lítið þekkt. Stærsta hindrunin er það sem tekur við eftir matið: of fá námspláss, kennaraskortur, of lítið nám utan dagvinnutíma og óljósar kröfur um tungumálakunnáttu fyrir fólk af erlendum uppruna. Helga Kristín tók dæmi frá Vestmannaeyjum um þegar pípara vantaði vegna laxeldis þar sem vantaði pípara. Fólki með kunnáttu og þekkingu var boðið í raunfærnimat og fengu síðan að klára námið í framhaldsskólanum, allir luku náminu. Nýtt rafrænt kerfi fyrir raunfærnimat á landsvísu er væntanlegt. Þau vildu senda skýr skilaboð til stjórnvalda: aukið fjármagn, samræmd upplýsingakerfi, meira samstarf og að raunfærnimat fái meira vægi. Því var fagnað var að raunfærnimat er nefnt í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Lára Hreinsdóttir, verkefnastjóri á menntavísindasviði HÍ fjallaði um Raunfærnimat í fjórum háskólum. Þetta var samstarf á milli HR, HA, LHÍ og HÍ og hafa þeir unnið saman frá vori 2024 að sameiginlegu verklagi sem byggir á aðferðafræði FA. Verkefninu lýkur um áramót. Um 50 nemendur hafa farið í matið í ólíkum námsleiðum, til dæmis leikskólakennarafræði, lögreglufræði, tæknifræði og tölvunarfræði. Frá 2021 hafa auk þess um 80 nemendur í leikskólakennarafræði við HÍ farið í gegnum mat. Handbók og tillögur um fjármögnun og regluverk hafa verið send ráðuneytinu
Einnig voru veittar viðurkenningar til fyrirmynda í námi fullorðinna og að þessu sinni hlutu Brynjar Sigurðsson frá Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum og Jónína Sigurðardóttir frá Fræðsluneti Suðurlands viðurkenningar
Um 240 manns tóku þátt ífundinum, sem var haldinn á Grand hótel og í streymi. Yfirskrift fundarins að þessu sinni var Þegar reynsla fær vægi og hæfni verður sýnileg – samstarf um raunfærnimat en hann er haldinn í samstarfi við NLL, Norrænt tengslanet um nám fullorðinna.
Horfið á streymi frá fundinum:
Myndir frá fundinum:












