Grænar og stafrænar umbreytingar, gervigreind, lýðfræðilegar breytingar og breyttar færniþarfir eru þættir sem allir hafa áhrif á vinnu okkar og atvinnulífið í heild. Nám getur því ekki verið eitthvað sem gerist aðeins áður en við förum út á vinnumarkaðinn, það þarf að halda áfram alla ævi, þar á meðal þar sem flestir verja stórum hluta tíma síns í vinnunni.
Þetta er helsta niðurstaða ráðstefnunnar Lærum, vinnum, vöxum – nám á vinnustað sem um 170 þátttakendur frá sjö löndum tóku þátt í þann 20. október síðastliðinn, þar sem áhersla var lögð á að skoða nám á vinnustað út frá sjónarhóli símenntunar. Þátttakendur komu víða að, úr fullorðinsfræðslu, starfsmenntun, háskólum, atvinnulífinu, ráðuneytum og hinu opinbera. Í boði voru þrjú sérfræðierindi og níu málstofur.
Á ráðstefnunni var rýnt í hvernig nám fer fram á vinnustað og hvernig gera megi stöðuga símenntun að eðlilegum hluta atvinnulífsins.
Ulrik Brandi frá Háskólanum í Árósum í Danmörku fjallaði um breiðan ávinning af námi almennt og ólíkar tegundir náms, þar sem formlaust nám væri algengasta útfærslan á vinnustað, þ.e. nám án beins skipulags og sem hluti af vinnudeginum. Hann sagði jafnframt að formlaust nám væri í örustum vexti á sama tíma og það væri lítið hannað og mælt. Hinar tegundirnar eru formlegt nám og óformlegt nám.
Petri Salo frá Háskólanum í Åbo í Finnlandi fjallaði meðal annars um mikilvægi stöðugrar sí- og endurmenntunar í takt við breytingar á vinnumarkaði sem gerðu ríka kröfu um sveigjanleika menntakerfisins og tækifæri fyrir nám í atvinnulífinu. Þá benti hann á að líklegt væri að árið 2035 myndi vera þörf fyrir hæfni eins og sjálfsstjórn, greinandi hugsun, samstarf og samhengisháða færni innan sértækra starfseininga.
Erindi Antonelu Miho, hagfræðings hjá OECD, bar yfirskriftina „Frá færniskorti til færnivistkerfa“. Hún fór yfir umbreytingar á vinnumarkaði út frá lýðfræðilegum breytingum, grænum og stafrænum umbreytingum, gervigreind og afturför hnattvæðingar. Í gögnum OECD um færniþarfir framtíðar kemur meðal annars fram að landsvæði sem gert var ráð fyrir að væru í lítilli hættu fyrir sjálfvirknivæðingu eru nú útsettust fyrir skapandi gervigreind. Upplýsingar sem þessar geta aðstoðað lönd og svæði við að bregðast við þannig að færni sem fólk býr yfir sé tengd við ný störf, þegar um er að ræða miklar umbreytingar. Nám, þjálfun, ráðgjöf og stuðningur eru mikilvæg verkfæri til að bregðast við þessari þróun tímanlega.
Eitt af því sem var rætt á ráðstefnunni er að vinnustaðanám snýst um meira en færni. Það getur skapað verðmæti fyrir einstaklinga, stofnanir og samfélagið, og mikið af því gerist óformlega í gegnum samvinnu, lausn vandamála og daglegt starf.
Það vekur upp nokkrar mikilvægar spurningar sem voru til umræðu í málstofunum: Hvaða aðstæður gera nám á vinnustað mögulegt? Hvernig getum við hannað betur nám sem þegar á sér stað óformlega án þess að formgera um of? Hvernig geta fyrirtæki og stofnanir gert nám að eðlilegum hluta af daglegu starfi þar sem allir eru þátttakendur á sinn hátt?
Ráðstefnan var unnin í samstarfi Norræns samstarfs um símenntun (NLL), Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Háskóla Íslands, Símenntar, Rannís og EPALE.
Efni frá ráðstefnunni má nálgast á vef nll.org fljótlega.









