Námskeiðið Þjálfun í raunfærimati verður haldið 6. og 7. október 2026. Námskeiðið er ætlað matsaðilum, verkefnastjórum og ráðgjöfum sem koma að raunfærnimats-verkefnum. Einnig eru hagsmunaaðilar sem vilja kynna sér framkvæmd raunfærnimats velkomin.
Námskeiðið er haldið hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Skipholti 50 b, þriðju hæð.
| Dagur | Hefst | Lok |
| Þriðjudagur 6. október | 10:15 | 16:00 |
| miðvikudagurdagur 7. október | 09:00 | 16:00 |
Námskeiðslýsing
Tilgangur námskeiðanna er að kynna fyrir þátttakendum hugtakið raunfærnimat og þjálfa þau í að vinna við raunfærnimat samkvæmt því ferli sem þróað hefur verið hér á landi. Námskeiðið er liður í að formfesta raunfærnimatsferlið, stuðla að gæðum og mæta síauknum þörfum.
Námskeiðið er 13 klukkustundir.
Leiðir á námskeiðinu
Farið er yfir skilgreiningu á raunfærnimati, reglugerðir, lög og framkvæmd. Farið verður yfir það raunfærnimatsferli sem þróað hefur verið hér á landi og greiningardæmi tekin til glöggvunar á framkvæmd þess. Lögð er áhersla á almenna virkni þátttakenda í gegnum umræður og æfingar í hópum þar sem þátttakendur fá tækifæri til að byggja upp færni í að meta raunfærni á uppbyggilegan og réttmætan hátt og finna lausnir á álitamálum.
Reglugerð no.1163
Þann 30. október 2011 kom út reglugerð vegna framhaldsfræðslulaga og þar segir m.a.: Sérfræðingar sem annast raunfærnimat skulu hafa aflað sér fullnægjandi þekkingar og þjálfunar í mati á raunfærni samkvæmt kröfum mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
