ÁRSFUNDUR FA 2025

TENGJUM SAMAN – Fjölbreytileiki, lærdómur, vöxtur

Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins verður haldinn þann 13. nóvember n.k. á Grand hótel og er haldinn í samstarfi við NLL – Norrænt samstarf um símenntun og verður einnig streymt. Fundurinn hefst kl. 11:00 og stendur til 13:45, boðið verður uppá léttar veitingar.

Þema fundarins Tengjum saman – fjölbreytileiki, lærdómur, vöxtur vísar í að undanfarin ár hefur þátttaka innflytjenda aukist mikið innan framhaldsfræðslunnar og voru um 51%  þátttakenda í námi  með erlendan ríkisborgararétt árið 2024. Mest sótta námsleið FA var Íslenska og atvinnulíf. Flestir innflytjendur eru í starfi, en aðgengi að íslenskunámi eða tungumálastuðningi er misjafnt. Framhaldsfræðslan hefur unnið markvisst að því að ná til fólksins og símenntunarmiðstöðvar um land allt sjá um framkvæmd og útfærslur í takt við þarfir á hverju svæði fyrir sig í samstarfi við hagaðila. 

Á ársfundi FA verður varpað ljósi á þátttöku fólks með erlendan ríkisborgararétt í verkfærum framhaldsfræðslunnar. 

Streymi frá fundinum:

Dagskrá

Opnun

Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra

Vöxtur innflytjenda í námi

Hildur Betty Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri FA og Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður á vinnumarkaðssviði SA og formaður stjórnar FA

Tungumálafulltrúi á vinnustað (Språkombud)

Olga Orrit, sérfræðingur hjá Miðstöð fyrir færniþróun í umönnunargeiranum í Svíþjóð fjallar um fyrirkomulag og árangur af tungumálastuðningi á vinnustað (Språkombud).  Sú aðferð hefur reynst vel þar í landi og hefur árangurinn sýnt sig meðal starfsfólks í gegnum aukinn tungumálaskilning, aukna vellíðan í vinnu, færri veikindadaga og minni starfsmannaveltu.

Pallborð: Stefna, umgjörð og aðgengi að jöfnum tækifærum til íslenskunáms

Þátttakendur: Hanna Katrín Friðriksson, atvinnvegaráðherra, Finnbjörn Hermannsson, formaður ASÍ og Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA. Aleksandra Leonardsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og inngildingu hjá ASÍ stýrir pallborði.

Stutt hádegishlé

Pallborð: Íslenskunám á vinnustað – tækifæri og áskoranir

Þátttakendur: Wendill Galan Viejo, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri á menntadeild Landspítalans, Ásta Bjarnadóttir, skrifstofustjóri starfsþróunar og starfsumhverfis hjá Reykjavíkurborg, Helga Fjóla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Hornsteini og Ólöf Guðmundsdóttir, hótelstjóri Hilton Reykjavik Nordica. Kristjana Arnarsdóttir, sérfræðingur á miðlunarsviði SA stýrir pallborði.

Fyrirmyndir í námi fullorðinna 2025

Fyrirmyndir í námi fullorðinna segja frá reynslu sinni af verkfærum framhaldsfræðslunnar og fá viðurkenningu fyrir sína frammistöðu. 

Fundastjóri ársfundar:

Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, sviðsstjóri fræðslusviðs ASÍ og varaformaður stjórnar FA

Skráið ykkur á fundinn hér:
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra
Hanna Katrín Friðriksson
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnumálaráðherra
Finnbjörn Hermannsson, formaður ASÍ
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA
Olga Orrit, sérfræðingur hjá Miðstöð fyrir færniþróun í umönnunargeiranum í Svíþjóð
Hildur Betty Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri FA
Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður á vinnumarkaðssviði SA
Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, sviðstjóri fræðslusviðs ASÍ
Ásta Bjarnadóttir, skrifstofustjóri starfsþróunar og starfsumhverfis hjá Reykjavíkurborg
Ólöf Guðmundsdóttir, hótelstjóri Hilton Reykjavík Nordica
Wendill Galan Viejo, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri á menntadeild Landspítala
Helga Fjóla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Hornsteinn
Kristjana Arnarsdóttir, sérfræðingur á miðlunarsviði SA
Aleksandra Leonardsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og inngildingu hjá ASÍ

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar