Í vikunni hittust sérfræðingar í raunfærnimati frá öllum Norðurlöndunum og sjálfstýrðu svæðunum í Kaupmannahöfn til að móta forgangsatriði í málaflokknum fyrir næstu þrjú árin. Antra Carlsen, framkvæmdastjóri NLL, fór yfir nýjar áherslur Norrænu ráðherranefndarinnar og ábendingar hagsmunaaðila frá ráðstefnu í Finnlandi sl. nóvember. Megin markmiðið sem lagt er upp með er að fleiri styrki stöðu sína á vinnumarkaði, óháð bakgrunni, í gegnum sí- og endurmenntun og að raunfærnimat sé notað í auknum mæli í því skyni.
Hópurinn dróg fram hugmyndir og ræddi meðal annars mikilvægi sýnileika á hæfni fólks á vinnumarkaði – bæði starfsfólk og fyrirtæki. Farið var yfir mismunandi markmið og leiðir í raunfærnimati og þá grundvallar forsendu að hæfniviðmið séu sýnileg, skýr og mælanleg.
Næsta skref er að bera þær leiðir sem dregnar voru upp á fundinum undir hagaðila til að fá endurgjöf og samtal um skilvirkustu leiðirnar til að ná megin markmiði tímabilsins. Sá fundur verður haldinn í haust. Sjá má upplýsingar um starf raunfærnimatsnetsins og annarra neta á vegum NLL á www.nll.org
