Beint á leiðarkerfi vefsins

RECALL

. 

EQM er afurð RECALL

EQM er gegnsætt matsferli fyrir fræðsluaðila að meta starfshætti sína út frá viðurkenndum gæðaviðmiðum.

EQM er hannað til að mæta síauknum kröfum um gagnsemi náms og sameiginleg gæðaviðmið fyrir fræðsluaðila utan hins formlega skólakerfis.

EQM tekur mið af: 1) gæðum þjónustunnar sem fræðsluaðili veitir, 2) innri gæðastjórnun og verklagsreglum fræðsluaðila, 3) hvernig núverandi starfshættir samræmast viðurkenndum gæðaviðmiðum.

EQM byggist á árlegu sjálfsmati sem er yfirfarið af EQM viðurkenndum matsaðila. Matsaðili er einnig til ráðgjafar um gæðamál meðan á matsferlinu stendur.

Fræðsluaðilar sem uppfylla gæðaviðmið sem sett eru fram í EQM matseyðublöðunum fá að auglýsa fræðslustarfsemi sína með sérstöku EQM-gæðamerki.

Nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu verkefnisins: http://www.europeanqualitymark.org/

.

RECALL - Recognition of quality in lifelong learning  

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins stýrði verkefni um þróun gæðavottunnar fyrir fræðsluaðila í símenntun. Verkefnið var styrkt af Leoarndó da Vinci starsfmenntaáætlun Evrópusambandsins.

Verkefnið byggði á niðurstöðum ALL verkefnisins sem lauk í byrjun ársins 2006. Markmiðið með RECALL var að mæta aukinni þörf fyrir gæði og gagnsæi í símenntun og starfsþjálfun með því að þróa einfalt gæðastjórnunarkerfi sem fræðsluaðilar geta nýtt við mat á námsframboði sínu. Enn fremur að hanna merki sem vottaðir fræðsluaðilar fá að nota með kynningum á þjónustu sinni. RECALL verkefnið átti einnig að skila viðskiptaáætlun til kynningar á gæðamerkinu með því markmiði að gera vottunarferlið sjálfbært.

Nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu verkefnisins: ww.recall.eu.com


Þú ert hér:

RECALL

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English