Þjálfun vegna raunfærnimats 22. og 23. apríl

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) heldur námskeið um raunfærnimat til styttingar á námi 22. og 23. apríl 2024.

Námskeiðið er ætlað matsaðilum, verkefnastjórum og ráðgjöfum sem koma að raunfærnimatsverkefnum. Einnig eru hagsmunaaðilar sem vilja kynna sér framkvæmd raunfærnimats velkomnir. Fullt var á námskeiðið í mars og því er aftur boðið uppá námskeið nú í apríl 2024.

Ekkert námskeiðsgjald er, en FA greiðir hvorki fyrir ferðir né uppihald þátttakenda.
Námskeiðið verður haldið hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Skipholti 50b, þriðju hæð.

SKRÁNING Á NÁMSKEIÐ

Tímar námskeiðs

Mánudagur 22. apríl kl. 10:15 – 16:00
Þriðjudagur 23. apríl kl. 09:00 – 16:00

Námskeiðslýsing

Tilgangur námskeiðanna er að kynna fyrir þátttakendum hugtakið raunfærnimat og þjálfa þá í því að vinna við raunfærnimat samkvæmt því ferli sem þróað hefur verið hér á landi. Námskeiðið er liður í að formfesta raunfærnimatsferlið, stuðla að gæðum og mæta síauknum þörfum. Námskeiðið er um 13 klukkustundir.

Leiðir á námskeiðinu

Á námskeiðinu verður farið yfir skilgreiningu á raunfærnimati, reglugerðir, lög og framkvæmd. Farið verður yfir það raunfærnimatsferli sem þróað hefur verið hér á landi og greiningardæmi tekin til glöggvunar á framkvæmd þess. Lögð er áhersla á almenna virkni þátttakenda í gegnum umræður og æfingar í hópum þar sem þátttakendur fá tækifæri til að byggja upp færni í að meta raunfærni á uppbyggilegan og réttmætan hátt og finna lausnir á álitamálum.

Reglugerð no.1163

Þann 30. október 2011 kom út reglugerð vegna framhaldsfræðslulaga og þar segir m.a.: Sérfræðingar sem annast raunfærnimat skulu hafa aflað sér fullnægjandi þekkingar og þjálfunar í mati á raunfærni samkvæmt kröfum mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Leiðbeinendur

Frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins eru leiðbeinendur á námskeiðinu Haukur Harðarson og Fjóla María Lárusdóttir.

SKRÁNING Á NÁMSKEIÐ

Skráðu þig á póstlista Fræðslumiðstöðvarinnar